Allt um trúboða

Trúboðar miðla sæluboðskap um áætlun Guðs og guðlegt hlutverk Jesú Krists.

Milljónir manna hafa verið blessaðir af trúboðum

Þið hafið séð þá á götum úti. Þeir hafa knúið dyra hjá ykkur. Það eru í raun um 65.000 þjónandi trúboðar um heim allan frá Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.

Hverjir eru trúboðarnir?

Trúboðar eru ungt fólk sem býður sig fram til 18 mánaða eða tveggja ára þjónustu við að kenna orð Guðs og liðsinna börnum hans. Það segir skilið við atvinnu, háskóla og annað mikilvægt, til að gefa sig óskipt að þjónustu við aðra og gera það sem Jesús kenndi postulum sínum:

Hafið í huga að trúboðar voru eins og hver annar áður en þeir fóru í trúboð og munu snúa til venjubundins lífs eftir trúboð sitt. Spyrjið þá um áhugamál þeirra og bakgrunn og það gæti komið ykkur á óvart hversu margt þið eigið sameiginlegt.

Við myndum njóta þess að hitta ykkur
Biðja um heimsókn

Hvernig geta trúboðar hjálpað mér?

Þótt samband okkar við Guð geti verið innilega persónulegt, þá þurfum við öll stundum örlitla aðstoð við að bera kennsl á það sem Guð er að segja við okkur. Hvar sem þið eruð stödd á hinum andlega vegi, þá geta trúboðar kennt trúarreglur sem geta hjálpað ykkur í lífinu. Hugsið um þá sem andlega kennara sem munu:

  • Hjálpa ykkur að komast nær Guði.
  • Sýna ykkur hvernig á að biðja og hljóta svör frá honum.
  • Hjálpa ykkur að finna svör við andlegum spurningum ykkar.
  • Fræða ykkur um frelsarann Jesú Krist og fagnaðarerindi hans.
  • Hjálpa ykkur að skilja ritningarnar.
  • Styðja ykkur í gegnum persónulegar áskoranir.
  • Hvetja ykkur til dáða í ferli iðrunar, trúar og skírnar.
  • Kynna ykkur fyrir samfélagi álíka þenkjandi trúaðra sem styður ykkur áfram í ykkar andlegu ferð.

Hverju búast má við af heimsókn trúboða

Trúboðar munu biðja þess að heimsókn þeirra hefjist með bæn. Ef þið eruð fús til þess, gætu þeir jafnvel beðið ykkur að flytja bænina. Hvað sem öllu líður, þá er markmiðið að bjóða heilögum anda að hafa áhrif á umræðurnar.

Þeir verja líklega fáeinum mínútum til að kynnast ykkur og áhugamálum ykkar betur. Trúboðarnir hafa ákveðið námsefni sem þeir geta kennt ykkur, en reyna þó að hafa boðskap sinn persónulegan fyrir ykkur og aðstæður ykkar. Þeir lesa úr Biblíunni og Mormónsbók með ykkur og bjóða ykkur að biðjast fyrir og spyrja hvort það sem þeir kenni sé sannleikur.

Ef þið óskið, þá munu trúboðarnir tímasetja aðra heimsókn. Á þeim fundi munu þeir kenna ykkur meira um Jesú Krist og hina endurreistu kirkju hans og svara öllum spurningum ykkar. Námsefni þeirra samanstendur af boðskap um hamingjuáætlun Guðs, fórn Jesú fyrir okkur, trú, iðrun, skírn, heilagan anda og að halda boðorð Guðs. Þeir munu áfram bjóða ykkur að biðjast fyrir, lesa Mormónsbók, koma í kirkju og jafnvel láta skírast. Hafið svo í huga að trúboðarnir munu kenna á ykkar hraða og virða tíma ykkar og óskir um að þeir komi aftur eða ekki.

Við getum fært þér frítt eintak af Mormónsbók heim að dyrum
Biðjið um frítt eintak af Mormónsbók

Algengar spurningar

Fólk hefur allskyns spurningar um „mormóna“ eða öllu heldur meðlimi Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Smellið hér til að sjá allar spurningarnar.