Allt um trúboða
Trúboðar miðla sæluboðskap um áætlun Guðs og guðlegt hlutverk Jesú Krists.
Milljónir manna hafa verið blessaðir af trúboðum
Þið hafið séð þá á götum úti. Þeir hafa knúið dyra hjá ykkur. Það eru í raun um 65.000 þjónandi trúboðar um heim allan frá Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.
Hverjir eru trúboðarnir?
Trúboðar eru ungt fólk sem býður sig fram til 18 mánaða eða tveggja ára þjónustu við að kenna orð Guðs og liðsinna börnum hans. Það segir skilið við atvinnu, háskóla og annað mikilvægt, til að gefa sig óskipt að þjónustu við aðra og gera það sem Jesús kenndi postulum sínum:
Hafið í huga að trúboðar voru eins og hver annar áður en þeir fóru í trúboð og munu snúa til venjubundins lífs eftir trúboð sitt. Spyrjið þá um áhugamál þeirra og bakgrunn og það gæti komið ykkur á óvart hversu margt þið eigið sameiginlegt.
Hvernig geta trúboðar hjálpað mér?
Þótt samband okkar við Guð geti verið innilega persónulegt, þá þurfum við öll stundum örlitla aðstoð við að bera kennsl á það sem Guð er að segja við okkur. Hvar sem þið eruð stödd á hinum andlega vegi, þá geta trúboðar kennt trúarreglur sem geta hjálpað ykkur í lífinu. Hugsið um þá sem andlega kennara sem munu:
- Hjálpa ykkur að komast nær Guði.
- Sýna ykkur hvernig á að biðja og hljóta svör frá honum.
- Hjálpa ykkur að finna svör við andlegum spurningum ykkar.
- Fræða ykkur um frelsarann Jesú Krist og fagnaðarerindi hans.
- Hjálpa ykkur að skilja ritningarnar.
- Styðja ykkur í gegnum persónulegar áskoranir.
- Hvetja ykkur til dáða í ferli iðrunar, trúar og skírnar.
- Kynna ykkur fyrir samfélagi álíka þenkjandi trúaðra sem styður ykkur áfram í ykkar andlegu ferð.