Hvað er Ljós fyrir heiminn?

„Þannig lýsi ljós yðar meðal mannanna, að þeir sjái góð verk yðar og vegsami föður yðar, sem er á himnum.“ – (Matteus 5:16)

Hvað er Ljós fyrir heiminn?

#LjósFyrirHeiminn er boð um að gera jólin að tíma þjónustu. Þetta er alþjóðlegt verkefni til að snerta hjörtu og breyta lífi með því að gera það sem Jesús gerði: að metta hungraða, hughreysta einmana, vitja sjúkra og þjáðra og sýna öllum góðvild. Jesús sagði: „Þér eruð ljós heimsins“ (Matteus 5:14). #LjósFyrirHeiminn er tilvalin leið til að láta ljós okkar – og ljósið hans – skína bjart.

Daglegar þjónustutillögur

Verkefnið #LjósFyrirHeiminn er áskorun um að sýna öðrum kærleika, á sama hátt og Jesús gerði í sinni jarðnesku þjónustu. Í desembermánuði eru sérstakar þjónustutillögur veittar til að hjálpa okkur að einbeita okkur að því að hjálpa öðrum yfir jólin. Ef þið viljið taka þátt, getið þið hlaðið niður dagatali með hugmyndum.

Sérstakar sunnudagssamkomur

Sunnudaginn fyrir jóladag höldum við sérstaka hvíldardagssamkomu sem tekur mið af fæðingu og lífi Jesú Krists. Vinir og kunningjar, sem ekki eru okkar trúar, eru velkomnir alla sunnudaga, en er sérstaklega boðið að koma og tilbiðja með okkur þann dag.

Verið #LjósFyrirHeiminn dag hvern

Á hverju ári um jólin fer Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í sérstaka átaksferð til að breiða út boðskap og hlutverk verkefnisins #LjósFyrirHeiminn. Þið getið þó gert þetta allan ársins hring með því að íhuga dag hvern hverjum þið getið þjónað.

Aðrar leiðir til að vera ljós fyrir heiminn